Stálu jólapökkum og dýrmætum skartgripum 17. desember 2010 19:45
Íbúar í raðhúsalengju í Hafnarfirði eru miður sín eftir að innbrotsþjófar létu þar greipar sópa í tveimur íbúðum og tóku með sér innpakkaðar jólagjafir, dýrmæta skartgripi og tölvur. Tjónið er metið á hundruð þúsunda króna. Innbrotin áttu sér stað milli 9 og 12 að morgni fyrr í vikunni í Þrastarási í Hafnarfirði þegar íbúar voru farnir til vinnu. Á mettíma tókst innbrotsþjófum að komast inn í báðar íbúðirnar með því að brjóta upp harðlæsta svefnherbergisglugga með kúbeini. Kristinn Arnar Jóhannesson, íbúi í Þrastarási, segir að þjófarnir hafa tekið skartgripi, þar á meðal fyrsta hringinn sem hann gaf eiginkonu sinni. Auk þess tóku þjófarnir dýran rafmagnsbúnað og fartölvu. „Við vorum með jólagjafir í pokum og það var búið að sturta úr þeim á gólfið. Við vitum ekki nákvæmlega hvað var tekið. Við eigum eftir að kanna það," segir Kristinn og bætir við að þjófarnir hafi vitað nákvæmlega hvað þeir voru að gera.Birgir Sigurjónsson, íbúi í Þrastarási.Þegar þeir höfðu tekið allt sem talist gat dýrmætt létu þeir til skarar skríða í íbúðinni við hliðina á og tóku annað eins. Þar leituðu þeir í öllum skúffum og skápum, skildu allt eftir í rúst en eldri hljómflutningstæki, sjónvarp og óekta skartgripi létu þeir eiga sig, að sögn Birgis Sigurjónssonar, íbúa í Þrastarási. Íbúar beggja húsanna voru ekki með þjófavarnarkerfi en voru þó tryggðir. Tjónið er metið á hundruð þúsunda og er rannsókn málsins í fullum gangi hjá lögreglu. Að undanförnu hefur verið brotist inn í ellefu heimahús í Hafnarfirði og Garðabæ og hafa flest innbrotin átt sér stað að degi til. „Okkur líður ekki hreint vel vegna þess að maður fyllist óöryggi," segir Birgir. Um mjög grófa árás á einkalíf fjölskyldunnar hafi verið að ræða. Kristinn segir eiginkonuna hrædda. „Maður er mest svekktur út í sjálfan sig að hafa látið þetta gerast hjá sér. Þetta gat ekki gerst hjá mér. Af hverju gerðist þetta hjá mér?"
Mest lesið Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi Innlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Innlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Hitnar undir feldi Péturs Innlent Fleiri fréttir Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Sjá meira