Björgunarsveitarmenn saman í bíó 4. nóvember 2010 17:15 Jóhann og félagar í björgunarsveitinni Suðurnes fóru á heimildarmyndina Norð Vestur – Björgunarsaga.
25 menn úr björgunarsveitinni Suðurnes í Reykjanesbæ fóru í hópferð á heimildarmyndina Norð Vestur - Björgunarsaga, sem fjallar um snjóflóðið á Flateyri árið 1995. Jóhann Berthelsen, sem hefur verið í tíu ár í björgunarsveitinni, var ánægður með myndina. „Hún snerti mig mjög mikið út af því að ég er fæddur og uppalinn á Vestfjörðum, reyndar á Tálknafirði. En ég átti frænku sem fórst í slysinu sem var jafngömul mér," segir Jóhann. Þrír úr sveitinni Suðurnes tóku þátt í björgunarstarfinu eftir snjóflóðið en björgunaraðgerðirnar eru á meðal þeirra stærstu sem Almannavarnir og Landsbjörg hafa staðið fyrir. Jóhann og félagar fóru á þremur björgunarsveitarbílum í bíóið og vöktu að vonum mikla athygli bæjarbúa. Einnig voru þeir allir klæddir björgunarsveitarpeysum á sýningunni. Spurður hvort þeir hafi ekki óttast að lenda í útkalli á miðri sýningu segir Jóhann: „Við gerðum smá grín að því að það væri dálítið fyndið ef það væri útkall," segir hann en sem betur fer gerðist það ekki. Fleiri björgunarsveitir hafa farið í hópferðir á heimildarmyndina, þar á meðal Hjálparsveit skáta í Hveragerði. Í næstu viku ætlar síðan Hjálparsveit skáta í Kópavogi, sem er með rústabjörgunarsveit innan sinna raða, að fara á myndina.- fb
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Lögregla eltist við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Sjá meira