Björgvin G. fór á pönktónleika eftir fund með Darling Þorbjörn Þórðarson skrifar 21. nóvember 2010 12:15 Karl Th. Birgisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og vinur Björgvins sem var honum innan handar við gerð bókarinnar, og Björgvin sjálfur með bókina góðu í útgáfuhófi á BSÍ.
Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, tróð sér ekki í Lundúnaferðina á fund með Alistair Darling. Eftir fundinn með Darling fór Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, á tónleika með pönksveitinni Sex Pistols. Þetta kemur fram í nýrri bók Björgvins, Storminum. Björgvin, sem helgar einum kafla bókarinnar fundinum með Alistair Darling, segir að látið hafi verið að því liggja að Baldur, fyrrverandi ráðuneytisstjóri sem nú hefur verið ákærður fyrir innherjasvik, hafi troðið sér í ferðina, en fundurinn frægi með Darling var í Lundúnum hinn 2. september 2008. Björgvin segir að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, hafi haft samband við sig og óskað eftir því að Baldur færi á fundinn sem fulltrúi Árna Mathiesen, fjármálaráðherra. Darling var „flaumósa og tættur" Björgvin segir fundinn með Darling, sem var skipulagður af honum og ráðuneyti hans, hafi verið mun styttri en menn geri sér grein fyrir miðað við umfjöllun fjölmiðla um hann. Breski fjármálaráðherrann hafi verið „flaumósa og tættur enda í pólitískum barningi á heimavígstöðvunum." Þá segist Björgvin hafa upplifað fundinn eins og Darling væri annars hugar. Björgvin segir niðurstöðu fundarins hafa verið að Landsbankinn héldi áfram í samvinnu við breska fjármálaeftirlitið, FSA, að flytja innstæður á Icesave í dótturfélag. Hvorki á þeim fundi né öðrum hafi komið fram að ríkið þyrfti að leggja fram tryggingar til af þessum flutningi gæti orðið. Björgvin segir að einn dapurlegasti kaflinn í útrásarsögunni og aðdraganda hrunsins sé að ekki hafi tekist að færa starfsemi Landsbankans yfir í dótturfélag. Björgvin segir að eftir fundinn með Darling hafi hann, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður hans og Áslaug Árnadóttir, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu, farið um kvöldið á tónleika með hinni sögufrægu pönksveit Sex Pistols með Johnny Rotten í fararbroddi í Hammersmith Odeon. Jón Sigurðsson, þáverandi stjórnarformaður FME, mun ekki hafa þegið boð um að koma með.
Tengdar fréttir Geir vildi að Björgvin bæri ábyrgð á neyðarlögunum Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, vildi að Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, flytti frumvarp til hinna umdeildu neyðarlaga hinn 6. október 2008, en því var harðlega andmælt af öðrum ráðherrum, þ.á.m Össur Skarphéðinssyni. Össur taldi fráleitt að ungur fagráðherra tæki slíka pólitíska sprengju að sér og úr varð að Geir flutti frumvarpið en ávarpaði þjóðina fyrst. Þetta kemur fram í nýrri bók Björgvins G. Sigurðssonar. 6. nóvember 2010 10:16 Myndir úr útgáfuteiti Björgvins Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, hélt útgáfuteiti á Umferðarmiðstöðinni í gær í tilefni af útkomu bókarinnar Stormurinn - Reynslusaga ráðherra. Bókin fjallar um ráðherraferil Björgvins og aðdragandann að hruni fjármálakerfisins á Íslandi. Fjöldi gesta var í útgáfuteitinu og Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, smellti af nokkrum myndum. 10. nóvember 2010 20:56 Björgvin G: Icesave í Hollandi ömurlegt hneyksli Icesave-ævintýri Landsbankans í Hollandi er hneyksli og einn ömurlegasti hluti af starfsemi bankanna undir lokin segir Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra. Hann segist ekki hafa vitað af reikningunum í Hollandi fyrr en mörgum mánuðum eftir opnun þeirra. 21. nóvember 2010 12:00 Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira
Geir vildi að Björgvin bæri ábyrgð á neyðarlögunum Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, vildi að Björgvin G. Sigurðsson, þáverandi viðskiptaráðherra, flytti frumvarp til hinna umdeildu neyðarlaga hinn 6. október 2008, en því var harðlega andmælt af öðrum ráðherrum, þ.á.m Össur Skarphéðinssyni. Össur taldi fráleitt að ungur fagráðherra tæki slíka pólitíska sprengju að sér og úr varð að Geir flutti frumvarpið en ávarpaði þjóðina fyrst. Þetta kemur fram í nýrri bók Björgvins G. Sigurðssonar. 6. nóvember 2010 10:16
Myndir úr útgáfuteiti Björgvins Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, hélt útgáfuteiti á Umferðarmiðstöðinni í gær í tilefni af útkomu bókarinnar Stormurinn - Reynslusaga ráðherra. Bókin fjallar um ráðherraferil Björgvins og aðdragandann að hruni fjármálakerfisins á Íslandi. Fjöldi gesta var í útgáfuteitinu og Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, smellti af nokkrum myndum. 10. nóvember 2010 20:56
Björgvin G: Icesave í Hollandi ömurlegt hneyksli Icesave-ævintýri Landsbankans í Hollandi er hneyksli og einn ömurlegasti hluti af starfsemi bankanna undir lokin segir Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráðherra. Hann segist ekki hafa vitað af reikningunum í Hollandi fyrr en mörgum mánuðum eftir opnun þeirra. 21. nóvember 2010 12:00