Innlent

Fermingarbörn safna fyrir vatnsverkefnum í Afríku

Söfnunin er fyrir verkefni í Malaví, Úganda og Eþíópíu.
Söfnunin er fyrir verkefni í Malaví, Úganda og Eþíópíu.

Í dag hefst söfnun um allt land þegar fermingarbörn úr 65 sóknum ganga í hús á tímabilinu á milli klukkan 17:30 og 21 og safna peningum til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í þrem löndum Afríku: Malaví, Úganda og Eþíópíu. Söfnunin stendur til 9. nóvember.

Í tilkynningu segir að starfsfólk kirkjunnar fræði um 3000 fermingarbörn um aðstæður í fátækum löndum Afríku, sérstaklega um skort á hreinu vatni. „Mörg þeirra hittu Stephen og Charity frá Úganda sem heimsóttu um 1700 fermingarbörn um allt land og sögðu frá lífi sínu og aðstæðum. Í fræðslunni heyra börnin um árangur af verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar hvernig hægt er að safna rigningarvatni og grafa brunna sem veita hreint vatn sem gjörbreytir lífinu til hins betra. Með þessu fá fermingarbörnin tækifæri til að láta til sín taka og gefa Íslendingum tækifæri til að leggja sitt af mörkum til aðstoðar þeim sem ekki hafa aðgang að hreinu vatni."

Þetta er í tólfta sinn sem söfnunin er haldin en í fyrra söfnuðust 8,2 milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×