Dyravörðunum sagt upp - Þorfinnur Ómars kærir líkamsárás 23. mars 2010 20:14 „
Að mínu mati er þetta ekki fréttnæmt. Ég ræddi við Þorfinn áðan. Hann vildi sjálfur ekki að þetta færi í fréttir. Þetta er lítilvægt mál," segir Gunnar Már Þráinsson, eigandi skemmtistaðarins Barböru, í samtali við Vísi. Þorfinnur Ómarsson, fjölmiðlamaður, og þrjá konur hafa kært dyraverði Barböru fyrir líkamsárás á laugardagskvöldið. Dyravörðunum hefur verið sagt upp störfum. Pressan greindi frá málinu fyrr í kvöld. Þar er haft eftir Þorfinni að honum og konunum hafi verið vísað út af staðnum eftir að hann gerði athugasemd við að starfsmaður hreinsaði glös af borði sem ekki hafði verið klárað úr. Þorfinnur segir að dyraverðirnir hafi ekki getað látið það vera að taka á sér á leiðinni út. Þegar út var komið komu fleiri dyraverðir að og keyrðu hann í götuna og settu hné í bakið á honum. Sjálfur segir Þorfinnur að ringulreið hafi ríkt fyrir utan staðinn og að dyraverðirnir hafi gengið í skrokk á konunum. Gunnar Már segir að sér hafi verið sagt að fjórmenningarnir hafi átt upptökin. „Ein er handleggsbrotin, önnur með brotna framtönn og allar þrjár lemstraðar eða tognaðar, kápurnar rifnar og þar fram eftir götunum. Þær eru danskennarar þannig að þær eru frá vinnu út af þessu. Sjálfur gat ég naumast hreyft hægri höndina daginn eftir og er rétt farinn að geta lyft henni núna," hefur Pressan eftir Þorfinni en eiginkona hans starfar sem dansari. Gunnar Már segist hafa rætt við Þorfinn um málið áðan. Sjálfur var hann ekki á staðnum þegar atvikið átti sér stað. „Svona gerist stundum en það eru tvær hliðar á öllum málum," segir Gunnar Már sem vonar að málið leysist farsællega og í góðu milli allra aðila. Hann segir að dyraverðunum þremur hafi verið sagt upp störfum þangað til annað komi í ljós. Á morgun hyggst Gunnar Már afhenda lögreglu upptökur úr eftirlitsmyndavélum á skemmtistaðnum.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira