Innlent

Fyrirtöku í máli Eiðs Smára frestað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Eiður Smári stefndi DV.
Eiður Smári stefndi DV.
Fyrirtöku í máli Eiðs Smára Guðjohnsen, sem átti að fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, var frestað. DV fjallaði um fjármál Eiðs Smára og fjárfestingar undir lok síðasta árs. Eiður Smári mótmælti umfjölluninni í bréfi sem Heimir Örn Herbertsson, lögmaður hans, sendi ritstjórum DV. Taldi hann umfjöllunina ólöglega.

Eftir að kvörtunin var send til ritstjóra DV vísaði annar ritstjóranna, Jón Trausti Reynisson, málflutningi Eiðs Smára á bug í samtali við Vísi. „Ef við myndum fara að hans kröfu, samkvæmt hans rökum gætum við ekki fjallað um mál sem eru mjög mikilsverð fyrir allan almenning á Íslandi og varða orsök og eðli efnahagshrunsins. Og við getum ekki látið Eið Smára hafa áhrif á það," sagði Jón Trausti þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×