Lýsir eftir fórnarlambi á spjallvef 8. september 2010 11:42 Hundar. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint. „
Þú sem varst úti að labba með hundinn þinn í Hafnarfirðinum í dag og varðst fyrir árás, viltu vinsamlegast gefa þig fram og koma til að tala við okkur. Þú veist hvar við búum." Þetta stendur á spjallvefnum er.is en þar lýsir kona eftir annnarri konu sem varð fyrir árás tveggja hunda í gær. Samkvæmt lýsingu konunnar, sem skrifar færsluna, þá var frænka hennar úti að ganga með tvo hunda í Hafnarfirði þegar þeir réðust á konu um fertugt og smáhund sem hún var að viðra. Konan skrifar að hún sé miður sín vegna málsins og segist ekki vita hvert hún eigi að snúa sér til þess að hafa uppi á konunni sem varð fyrir barðinu á hundunum. „Okkur hjónunum langar að vita hvort það sé ekki allt í lagi með þig og hundinn þinn. Við höfum áhyggjur af þessu öllu...," skrifar hún en frænka konunnar, sem var úti að viðra árásahundana, sagði konunni heimilisfangið hjá þeim og því viti hún hvert skal leita. „Mér þykir rosalega fyrir þessu :( Ef einhver hérna kannast við konuna þá má sá hinn sami biðja hana um að hafa samband. Konan var í kringum fertugt, með millisítt hár, gleraugu og lítin hund," skrifar konan svo á spjallvefinn en nafn hennar kemur ekki fram. Viðbrögð við lýsingu konunnar hefur að mestu verið góð. Þó kemur fram á vefnum að henni hafi borist hótanir í pósti vegna málsins, þá helst í ljósi þess að hún gerir ráð fyrir að hundunum verði lógað vegna málsins. Hægt er að nálgast færslu konunnar hér.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira