Biskup biðjist afsökunar 25. ágúst 2010 10:17 Séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju,
Séra Þórhallur Heimisson, sóknarprestur í Hafnarfjarðarkirkju, segir vaxandi stuðning meðal presta við að skipuð verði sannleiksnefnd til að rannsaka meint kynferðisbrot Ólafs Skúlasonar, fyrrverandi biskups. Hann segist skilja gremju almennings til Þjóðkirkjunnar sem telji að ekki sé verið að gera málin upp. Þórhallur vill að Karl Sigurbjörnsson, biskup, biðjist afsökunar fyrir hönd kirkjunnar. Meint brot Ólafs hafa verið til umræðu undanfarna daga. Fyrr í vikunni lagði séra Sigríður Guðmarsdóttir til að yfirstjórn kirkjunnar færi þess á leit við dómsmálaráðherra að sett verði saman óháð sannleiksnefnd til að rannsaka ásakanir um þöggun íslensku þjóðkirkjunnar í máli Ólafs. Prestafélagið hefur boðað til félagsfundar eftir helgi til að ræða málið. Þórhallur var gestur í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun. Þar var hann spurður út í gremju almennings og úrsagnir úr Þjóðkirkjunni. „Þetta eru náttúrulega búin að vera hræðileg mál sem hafa tekið langan tíma og það sér ekki fyrir endann á." Þórhallur sagði nóg komið af vangaveltum og að kominn væri tími til að biskup og stjórn kirkjunnar bæðu umræddar konur afsökunar og fyrirgefninar á því hafa ekki hlustað á þær á sínum tíma. Hann sagði að það væri grundvallaratriði.Vaxandi stuðningur við sannleiksnefnd Þá tók Þórhallur undir með Sigríði og sagði brýnt að stofnuð verði sérstök sannleiksnefnd. „Mér finnst nauðsynlegt að kirkjan biðji dómsmálaráðherra um aðstoð við að stofna sannleiksnefnd eins og rætt hefur verið um. Sem yrði óháð kirkjunni og stæði fyrir utan hana til að fara yfir þessi mál í eitt skipti fyrir öll. Nefnd sem geti spurt þá út í sem tengdust málinu á sínum tíma, farið yfir öll skjöl og birt óháða niðurstöðu." Aðspurður hvort hann telji raunhæft að þessi leið verði farinn sagðist Þórhallur svo vera. Vaxandi hópur presta vilji fara þessa leið og hann hafði rætt málið við formann Prestafélagsins í gær. „Ég held að það sé mjög mikill þungi hjá mörgum að óska eftir að þetta verði gert. Mér finnst þetta vera algjört grundvallaratriði." Hægt er að hlusta á viðtalið hér.
Mest lesið Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði Innlent Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Innlent Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Erlent Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Innlent Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Innlent Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Innlent „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Fleiri fréttir Sendi vitlaust skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Bíll hafnaði á vegriði „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Sjá meira