Innlent

Þjófagengi í Árbæ: Tveimur sleppt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fimm karlmenn í Árbæjarhverfi í gærmorgun vegna rannsóknar á innbrotum í Árbæ og á Ártúnshöfða að undanförnu. Samkvæmt lýsingum sjónarvotta þusti hópur lögreglumanna inn í íbúð í hverfinu og leiddi hina grunuðu út í járnum.

Árni Þór Sigmundsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að þrír hinna grunuðu séu enn í haldi, hinum tveimur hafi verið sleppt. Mennirnir eru enn í yfirheyrslum en Árni segir ekki líkur á að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim. Mennirnir eru íslenskir, á aldrinum frá tvítugu til þrítugs. Þeir hafa allir komið við sögu lögreglu áður.

Að sögn Árna hafa þrjár húsleitir verið gerðar í tengslum við málið og að þegar hafi tekist að tengja mennina við þrjú innbrot.


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×