Ölvaðir ökumenn greiða tryggingafélögum milljónir Jón Hákon Halldórsson skrifar 25. ágúst 2010 10:09 Ökumenn hafa verið krafðir um milljónir vegna ógætilegs aksturs sem hefur orsakað slys. Mynd/ Pjetur.
Vátryggingafélag, sem greitt hefur bætur vegna tjóns af völdum ökutækja, á endurkröfurétt á hendur þeim, sem veldur tjóni af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Slíkar endurkröfur á tjónvalda í umferðinni hafa aldrei verið fleiri en í fyrra, samkvæmt tilkynningu sem endurkröfunefnd sendi frá sér í morgun. Í fyrra bárust nefndinni samtals 271 ný mál til úrskurðar. Af þessum málum samþykkti nefndin endurkröfu að öllu leyti eða að hluta í 253 málum. Í hitteðfyrra var heildarfjöldi mála á hinn bóginn 204, og samþykktar endurkröfur að öllu eða einhverju leyti voru 180. Heildarupphæðin nemur rúmlega 100 milljónumÍ fjárhæðum talið námu þessar endurkröfur samtals rúmlega 103 milljónum króna, og er þá einnig tekið tillit til viðbótarendurkrafna í eldri málum. Hæsta einstaka endurkrafan nam tæpum 3.9 milljónum króna, og sú næst hæsta nam 3.5 milljónum króna. Alls voru 50 endurkröfur að upphæð 500 þúsund krónum eða meira í fyrra. Á árinu 2008 námu hins vegar samþykktar endurkröfur alls tæplega 57 milljónum króna. Ölvun oftast ástæðan Ástæður endurkröfu eru langoftast ölvun tjónvalds, þ.e. í 170 tilvikum, eða í rúmum 67% endurkrafnanna. Lyfjaáhrif var ástæða endurkröfu í 37 tilvikum. Um 82% endurkrafnanna voru þannig vegna ölvunar ökumanna eða lyfjaáhrifa þeirra. Í 47 málum voru ökumenn endurkrafðir sökum ökuréttindaleysis. Vegna stórkostlega vítaverðs aksturslags eða glæfraaksturs voru 14 ökumenn endurkrafðir og 3 vegna stórfellds vanbúnaðar ökutækis. Loks var mælt fyrir um endurkröfu í einu máli vegna beins ásetnings ökumanns um að valda tjóni. Í þessum málum voru 212 karlar krafðir um endurgreiðslu, en 41 kona. Hlutföllin eru 84% á móti 16%. Hlutur kvenna í málum af þessu tagi var hins vegar 24% á árinu 2008. Ökumenn sem voru 25 ára og yngri áttu hlut að um 41% mála. Á árinu 2008 var hlutur þeirra um 38%. Óvarlegt að fullyrða um fjölgun mála Nefndin segir að þótt fjöldi slíkra mála sé svo mikill á árinu 2009 eins og fyrr segir, sé óvarlegt að álykta að tjónsatvikum sem falla undir endurkröfunefndina hafi fjölgað langt umfram meðaltalið á því ári miðað við fyrri ár. Þó kunni um nokkra aukningu kunni að vera að ræða. Þetta skýrist af því að tjónin sem koma til kasta nefndarinnar hafi oft gerst a.m.k. einu til tveimur árum fyrr. Þá geti einnig orðið nokkuð tilviljanakennt hvorum megin áramóta málasendingar tryggingafélaga til nefndarinnar kunni að falla.
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Einar horfir til hægri Innlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Fleiri fréttir Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Sjá meira