Lögreglan sýnilegri við skólana á næstunni 25. ágúst 2010 12:55
Framhaldsskólar og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa að loknum sumarleyfum og má því búast við að umferð þyngist á álagstímum. Í tilkynningu biður lögreglan ökumenn um að hafa þetta í huga og gera ráð fyrir að ferðatími til og frá vinnu kunni að aukast nokkuð frá því sem verið hefur. „Síðustu ár hefur slysum í umferð fjölgað í endaðan ágúst og í september með aukinni umferð," segir ennfremur. Ökumenn eru af þessu tilefni hvattir til að sýna sérstaka aðgát. „Bent er á að flest umferðarslys verða við aftanákeyrslu og því mikilvægt að gæta að því að gott bil sé milli ökutækja." Þá segir að lögreglan muni á næstunni kappkosta að vera sýnileg á helstu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins og grípa inn í og aðstoða þar sem þess er þörf. Hún mun og vera við grunnskóla í umdæminu til að minna ökumenn á aðgæslu enda margir vegfarendur að stíga þar sín fyrstu spor í umferðinni. Á meðfylgjandi töflum má sjá að hvaða grunnskólum eftirlitið beinist að sérstaklega og hvaða daga lögregla verður þar við mælingar. Ennfremur segir að lögreglan hafi fengið ábendingar um hraðakstur við nokkra grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og mun af þeim sökum vera þar með ómerkta bifreið við hraðamælingar, auk hins sýnilega eftirlits. „Þeir ökumenn sem aka of hratt miðað við aðstæður mega búast við sektum."
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sjá meira