Engin kvörtun borist ríkislögreglustjóra JSS skrifar 26. ágúst 2010 06:00 Hefur gefið út reglur og leiðbeiningar um skráningu mála í lögreglukerfinu.
Ekkert erindi hefur borist embætti ríkislögreglustjóra varðandi ásakanir þess efnis að skráningum brotamála hjá lögreglu sé breytt þannig að þær gefi ranga tölfræðilega mynd af eðli og tíðni brota. Þetta segir Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra. Snorri Magnússon formaður Landssambands lögreglumanna hefur greint frá því að lögreglumenn gagnrýni breytingar á skráningum mála þannig að þau falli ekki undir þann brotaflokk sem þau ættu að teljast til. Þannig sé innbrot ekki innbrot nema að einhverju sé stolið. Ella sé það skráð sem eignaspjöll. Umferðarslys sé umferðarslys þurfi að kalla til sjúkrabíl, en árekstur meiðist einhver lítillega og leiti sér sjálfur hjálpar. Þá geti líkamsárás orðið aðstoð við borgarann finnist fórnarlamb liggjandi í blóði sínu en gerandinn sé á bak og burt. „Þetta skekkir tölfræðina og þá þróun í fjölda afbrota sem á sér stað,“ segir Snorri. „Með öðrum orðum, þetta sýnir betri árangur en á sér raunverulega stað.“ Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu hefur brugðist við. „Ég hef beðið dómsmálaráðuneytið að rannsaka þessar ásakanir sem eru grafalvarlegar og algjörlega úr lausu lofti gripnar,“ segir hann. Að sögn Guðmundar hefur ríkislögreglustjóri gefið út reglur og leiðbeiningar um skráningu mála í lögreglukerfinu, meðal annars í þeim tilgangi að afbrotatölfræðin sé rétt og samræmd. Embættið gengur út frá því að lögreglustjórar vinni samkvæmt þeim. -jss
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fleiri fréttir Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Sjá meira