Innlent

Háskólasjóður hefur rýrnað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Háskólasjóður hefur rýrnað mjög að undanförnu. Ástæðan er sú að lengi vel rann hluti tekjuskatts þeirra skattgreiðenda sem standa utan trúfélaga til Háskóla Íslands. Árið 2009 var hins vegar gerð breyting á og nú heldur ríkissjóður peningunum sem áður rann í sérstakan Háskólasjóð.

„Í kjölfar hrunsins var þessi tenging afnumin. Tekjur HÍ höfðu aukist úr um 150 milljónum króna í rúmar 200 milljónir króna á árunum 2005-2008, aðallega vegna aðfluttra launþega sem skráðu sig ekki í trúfélag," segir Sigurður J. Hafsteinsson, fjármálastjóri HÍ, í samtali við vefinn Student.is. Lagabreytingin tók gildi um áramótin 2008-2009. Sigurður segir í samtali við Student.is að án breytinganna hefði mátt búast við að Háskólasjóður hefði fengið 200 milljónir í fyrra en vegna breytinganna hafi þær einungis verið 100.

Á vef Háskóla Íslands kemur fram að fé úr Háskólasjóði skuli verja til að efla menningarstarfsemi innan háskólans, s.s. útgáfustarfsemi, fyrirlestrahald fyrir almenning, tónleikahald og til annarrar menningarviðleitni, sem verðug er að mati háskólaráðs. Einnig skal heimilt að leita til sjóðsins vegna óvæntra fjárþarfa háskólans, sem upp kunna að koma, þannig að ekki gefist ráðrúm til að afla fjár eftir venjulegum leiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×