Atlaga gerð að forstjóra Sjúkratrygginga Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. ágúst 2010 10:09 Guðlaugur Þór Þórðarson segir að skipan nýju stjórnarinnar veki athygli. Mynd/ Vilhelm.
Það á augljóslega að gera fleiri atlögur að forstjóra Sjúkratrygginga, segir Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra sem nú á sæti í heilbrigðisnefnd Alþingis. Fréttablaðið greindi frá því í dag að Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefði sett af stjórn Sjúkratrygginga. Stutt er síðan að Álfheiður hugðist áminna Steingrím Ara Arason, forstjóra stofnunarinnar, en hætti við eftir umfjöllun fjölmiðla. Guðlaugur segir að það veki sérstaka athygli að ráðherra setji stjórnina af í heild sinni. Þessi stjórn hafi unnið bæði í sínu umboði og umboði Ögmundar Jónassonar. „Ég veit ekki til þess að það hafi komið nein málefnaleg gagnrýni á hennar störf. Það er svo sem ekkert óeðlilegt að það séu gerðar einhverjar breytingar á stjórn stofnunar, en það er mjög sérstakt að henni sé hent út í heilu lagi og önnur sett í staðinn," segir Guðlaugur. Guðlaugur segir jafnframt að skipan nýju stjórnarinnar veki mikla athygli. „Það vekur athygli að það er aðili úr ráðuneytinu, sem er kannski ekki alveg það sem menn voru að leggja upp með í rannsóknarskýrslunni. Sömuleiðis eru þarna, ef ég man rétt, aðili frá Landspítalanum," segir Guðlaugur. Hann bendir hins vegar á að hugmyndin hafi meðal annars verið sú að Sjúkratryggingar myndu semja við Landspítalann. „Á sama hátt er þarna manneskja sem hefur ekkert hikað við að ráðast á forstjóra Sjúkratrygginga og hefur stutt ráðherrann þegar að hún fór algerlega að tilefnislausu og án nokkurra málefnalegra ástæðna gegn honum," segir Guðlaugur og vísar þar til viðtals við Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur stjórnsýslufræðing skömmu eftir að Steingrími Ara var veitt áminning. Þá hafi Sigurbjörg ráðist gegn Steingrími Ara og störfum hans fyrir fjármálaráðuneytið þegar að hún hélt ræðu á borgarafundi í janúar í fyrra.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sjá meira