Innlent

Ölvaðir ökumenn greiða tryggingafélögum milljónir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ökumenn hafa verið krafðir um milljónir vegna ógætilegs aksturs sem hefur orsakað slys. Mynd/ Pjetur.
Ökumenn hafa verið krafðir um milljónir vegna ógætilegs aksturs sem hefur orsakað slys. Mynd/ Pjetur.

Vátryggingafélag, sem greitt hefur bætur vegna tjóns af völdum ökutækja, á endurkröfurétt á hendur þeim, sem veldur tjóni af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Slíkar endurkröfur á tjónvalda í umferðinni hafa aldrei verið fleiri en í fyrra, samkvæmt tilkynningu sem endurkröfunefnd sendi frá sér í morgun.

Í fyrra bárust nefndinni samtals 271 ný mál til úrskurðar. Af þessum málum samþykkti nefndin endurkröfu að öllu leyti eða að hluta í 253 málum. Í hitteðfyrra var heildarfjöldi mála á hinn bóginn 204, og samþykktar endurkröfur að öllu eða einhverju leyti voru 180.

Heildarupphæðin nemur rúmlega 100 milljónum

Í fjárhæðum talið námu þessar endurkröfur samtals rúmlega 103 milljónum króna, og er þá einnig tekið tillit til viðbótarendurkrafna í eldri málum. Hæsta einstaka endurkrafan nam tæpum 3.9 milljónum króna, og sú næst hæsta nam 3.5 milljónum króna. Alls voru 50 endurkröfur að upphæð 500 þúsund krónum eða meira í fyrra. Á árinu 2008 námu hins vegar samþykktar endurkröfur alls tæplega 57 milljónum króna.

Ölvun oftast ástæðan


Ástæður endurkröfu eru langoftast ölvun tjónvalds, þ.e. í 170 tilvikum, eða í rúmum 67% endurkrafnanna. Lyfjaáhrif var ástæða endurkröfu í 37 tilvikum. Um 82% endurkrafnanna voru þannig vegna ölvunar ökumanna eða lyfjaáhrifa þeirra. Í 47 málum voru ökumenn endurkrafðir sökum ökuréttindaleysis. Vegna stórkostlega vítaverðs aksturslags eða glæfraaksturs voru 14 ökumenn endurkrafðir og 3 vegna stórfellds vanbúnaðar ökutækis. Loks var mælt fyrir um endurkröfu í einu máli vegna beins ásetnings ökumanns um að valda tjóni. Í þessum málum voru 212 karlar krafðir um endurgreiðslu, en 41 kona. Hlutföllin eru 84% á móti 16%. Hlutur kvenna í málum af þessu tagi var hins vegar 24% á árinu 2008. Ökumenn sem voru 25 ára og yngri áttu hlut að um 41% mála. Á árinu 2008 var hlutur þeirra um 38%.



Óvarlegt að fullyrða um fjölgun mála


Nefndin segir að þótt fjöldi slíkra mála sé svo mikill á árinu 2009 eins og fyrr segir, sé óvarlegt að álykta að tjónsatvikum sem falla undir endurkröfunefndina hafi fjölgað langt umfram meðaltalið á því ári miðað við fyrri ár. Þó kunni um nokkra aukningu kunni að vera að ræða. Þetta skýrist af því að tjónin sem koma til kasta nefndarinnar hafi oft gerst a.m.k. einu til tveimur árum fyrr. Þá geti einnig orðið nokkuð tilviljanakennt hvorum megin áramóta málasendingar tryggingafélaga til nefndarinnar kunni að falla.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×