Finna ekki munka sem vilja til Íslands 20. nóvember 2010 08:00 Kaþólska kirkjan á Íslandi er í sambandi við erlend klaustur um að fá senda hingað munka til að manna klaustur í nágrenni höfuðborgarinnar. Í því yrðu stundaðar fyrirbænir, helgiathafnir og mögulega barna- og unglingastarf. Myndin er tekin fyrir nokkru í Aðalbyggingu Háskóla Íslands. GVA
Kaþólska kirkjan á Íslandi leitar enn að munkum í klaustur hér á landi, að sögn séra Patricks Breen, staðgengils biskups. „Það er samt langt í land ennþá,“ segir séra Patrick og áréttar að ekki sé komið að því að finna munkaklaustrinu stað eða huga að byggingu þess. „Fyrst leitum við að munkum og það mál er ekki enn í höfn.“ Kaþólska kirkjan hér hefur verið í sambandi við nokkur klaustur víða um heim, en án árangurs enn sem komið er. „En við gefumst ekki upp,“ segir séra Patrick. Hugmyndin um að stofna munkaklaustur á Íslandi segir hann langt því frá nýja af nálinni. „Þessar hugmyndir hafa verið í gangi í áratugi, næstum heila öld,“ segir séra Patrick. Þá hafi þekktir Íslendingar verið fylgjandi hugmyndinni, þeirra fremstir ef til vill Halldór Laxness, sem tók kaþólska trú í klaustri í Lúxemborg og Kristján Eldjárn forseti, sem hann segir hafa látið spyrja páfann í Róm um hvort ekki mætti koma hér á stofn munkaklaustri. „Allir kaþólskir biskupar sem hér hafa verið, allt frá því Meulenberg varð fyrstur biskup í Landakoti, hafa reynt. Meulenberg fékk munka frá klaustri í Hollandi, keypti jörðina Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi og var búinn að skrifa undir,“ segir séra Patrick en þá brast á með seinni heimsstyrjöldinni og snurða hljóp á þráðinn. Séra Patrick segir fyrirbænir helstu ástæðu þess að kaþólska kirkjan vilji fá munka til Íslands. „Við viljum fá þá til að biðja, biðjast fyrir, biðja fyrir fólki og fyrir öllum bænarefnum sem standa til bæði hjá einstaklingum og fyrir þjóðfélaginu. Og líka um leið til þess að hafa stað þar sem fólk getur komið til að halda kyrrðardaga, til að tala um andleg málefni við munka, til að draga sig í hlé,“ segir hann og kveður þar komna helstu ástæðu þess að kirkjan vilji ekki hafa klaustrið of langt frá borginni. „Til þess að fólk geti farið um helgar og jafnvel á kvöldin í einn til tvo tíma eftir vinnu til að vera viðstatt helgihald í klaustrinu.“ Fyrirmyndir að slíku munkaklaustri segir séra Patrick víða að finna, svo sem í Frakklandi og Þýskalandi. „Slík klaustur hafa geysilega mikið aðdráttarafl.“ Að auki segir séra Patrick að ef klaustrið sé ekki of langt frá borginni þá mætti hafa þar aðstöðu til barna- og unglingastarfs. „Við erum ekki með neitt þannig eins og er, ekki eins og lúterska kirkjan sem getur sent krakka í Vatnaskóg eða á svipaða staði. Við erum ekki með neitt svoleiðis og viljum helst hafa munka til slíkra starfa.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira