Innlent

Kvenmannslaust Counter Strike-maraþon

Sigurvegarar stærri keppninnar, þeir Sindri Örn Steinarsson, Stefán Dagbjartsson, Aron Mímir Gylfason, Karl Ólafur Sveinsson og Hjalti Freyr Magnússon.
Sigurvegarar stærri keppninnar, þeir Sindri Örn Steinarsson, Stefán Dagbjartsson, Aron Mímir Gylfason, Karl Ólafur Sveinsson og Hjalti Freyr Magnússon.
Af hundrað og fjörutíu keppendum á tölvuleikjamóti í Counter Strike var engin kvenmaður á meðal þáttakenda. Mótshaldarar segjast hafa orðið fyrir örlitlum vonbrigðum með kynjahlutfallið.

Mótið var á vegum Tvíundar, félags tölvunarfræðinema við Háskólann í Reykjavík og fór fram síðustu helgi. Tuttugu og fimm lið kepptu í tveimur vinsælum skotleikjum, annars vegar Counter-Strike 1.6 og Counter-Strike: Source.

Mótsaðstaðan var opin í tæpa þrjá sólarhringa og segir í tilkynningu að margir spilarar hafi fórnað svefni til að nýta stemminguna á meðan hún gafst. Fimm spilarar stóðu þó uppi sem sigurvegarar, en þeir eru að sjálfsögðu allir karlkyns.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×