Landlæknir skoðar reikninga tannlæknis 14. desember 2010 06:00 Landlæknir segir að athugað verði hvernig skráningu heilsufarsupplýsinga á stofu tannlæknisins á Suðurnesjum sé háttað. „
Það er alfarið mál Sjúkratrygginga Íslands,“ segir Geir Gunnlaugsson landlæknir spurður álits á ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) þess efnis að hætta viðskiptum við tannlækni á Suðurnesjum sem ákærður hefur verið fyrir fjársvik upp á 129 þúsund krónur. Geir segir landlæknisembættið ekkert hafa með þann þátt málsins að gera og sé það einungis á hendi Sjúkratrygginga. Sjúkratryggingar rituðu landlæknisembættinu bréf vegna ákvörðunarinnar um stöðvun á endurgreiðslum til tannlæknisins þar sem segir að ákvörðunin verði tekin til endurskoðunar staðfesti landlæknir að starfsemi tannlæknisins uppfylli faglegar kröfur og önnur skilyrði í heilbrigðislöggjöf. Spurður hvort embættið hafi svarað því bréfi segir landlæknir svo ekki vera, en hann og forstjóri SÍ hafi rætt málið. Dómur hefur enn ekki gengið í málinu og spurður hvað það þýði verði tannlæknirinn sýknaður eða málinu vísað frá dómi segir landlæknir ákvörðunina um að kæra hann til lögreglu alfarið hjá SÍ. Komi til sýknu eða frávísunar verði SÍ eða stjórnvöld að taka ákvörðun í framhaldi af því. Landlæknir segir hins vegar faglegan þátt málsins vera á borði landlæknisembættisins. „Hinn faglegi þáttur í starfi tannlæknisins verður skoðaður og hvernig hann samræmist þeim reikningum sem eru fram reiddir af hans hálfu til Sjúkratrygginga. Það er vinna sem er í gangi hjá okkur.“ Landlæknir segir einnig að athugað verði hvernig skráningu heilsufarsupplýsinga á stofu tannlæknisins sé háttað. Ákveðnar reglur séu um hvað eigi að skrá í heilbrigðisþjónustu og hvernig eigi að skrá það. Landlæknisembættið muni fá tannlækni til að inna af hendi þá vinnu hvað varðar tannlækninn á Suðurnesjum. „Þetta mál hefur verið lengi til skoðunar og Sjúkratryggingar hafa haft óþægilegan grun um að ekki væri allt með felldu. Þess vegna hafa ákveðnir þættir í starfi þessa tiltekna tannlæknis verið til skoðunar sem Landlæknisembættið hefur komið að fyrr á árum, áður en ég kom til starfa. En nú þegar liggja fyrir gögn sem sýna ósamræmi milli framlagðra reikninga og tannviðgerða.“ jss@frettabladid.is
Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Erlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Erlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Fleiri fréttir Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Sjá meira