Steingrímur J. bauð fram aðstoð við hugmyndafræðilega endurnýjun Viðskiptaráðs Þorbjörn Þórðarson skrifar 23. september 2010 18:45
Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands segir að samtökin hafi farið of geyst fyrir bankahrunið og verið of meðvirk með útrásarvíkingum. Fjármálaráðherra gagnrýnir samtökin fyrir að líta ekki í eigin barm og bauð fram aðstoð við hugmyndafræðilega endurnýjun samtakanna. Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð stóðu fyrir morgunarverðarfundi í morgun um úrbætur á skattkerfinu. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra tók til máls og varði skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Þá gagnrýndi hann Viðskiptaráð fyrir að líta ekki í eigin barm, en samtökin hafa legið undir ámæli fyrir að hafa blásið stöðugt í efnahagsbóluna í góðærinu þangað til hún sprakk með skelfilegum afleiðingum fyrir alla landsmenn. „Ég fagna því að að Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð leggi vinnu í þessi mál (úrbætur á skattkerfinu innsk.blm) það er lofsvert og virðingarvert og ég lít á það sem hjálp við okkar erfiða verkefni. Ég hef boðið fram aðstoð mína í staðinn við að endurskipuleggja Samtök atvinnulífsins og hagræða talsvert á þeim vettvangi og jafnvel mun ég standa fyrir ráðstefnu innan skamms um það þarfa og brýna verkefni og koma þá með leiðsögn um það hvernig þessi samtök ykkar geti hugmyndafræðilega farið í gegnum sig sjálf, gert upp hrunið og ykkar ábyrgð á því," sagði Steingrímur. Hann vísað til þess að margir aðilar hefðu farið í naflaskoðun á eigin störfum, lífeyrissjóðirnir, kirkjan og fleiri. „Það er verið að rannsaka víða hér og þar og menn eru að horfast í augu við sjálfa sig, en hvernig er það með ykkar samtök, verður gerð skýrsla? Um þátt og hlut og framgöngu samtaka ykkar í aðdraganda hrunsins? Ég kem ekki hingað sem skoðanalaus maður til að hlýða á einhvern óumdeildan erkibiskupsboðskap, en ég virði ykkar sjónarmið, hlusta á efnisleg rök og er fús til uppbyggilegs samstarfs," sagði Steingrímur. Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, segir að fjármálaráðherra hafi ekki kynnt sér starf samtakanna nægilega vel. „Það kannski sýnir hvað Steingrímur er illa að sér um störf Viðskiptaráðs og mögulega annarra samtaka sem um ræðir því við erum einmitt búin að fara í gegnum þessa naflaskoðun," segir Finnur. Finnur er að vísa til hundrað manna lokaðs fundar á vormánuðum þar sem félagar í Viðskiptaráði komu saman til að ræða hvað hefði farið miður. Samtökin hafa hins vegar ekki látið vinna neina skýrslu um eigin störf eins og Steingrímur benti á í ræðu sinni. Fóruð þið of geyst og voruð þið of meðvirkir með útrásarvíkingunum? „Ég held að stutta svarið við þessu hljóti að vera „já," það greip sig einhvers konar óðagot, eða eins þú orðar það, meðvirkni. Það þýðir hins vegar ekki að allt sem hafi verið gert hafi verið til vansa því flest af því sem Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð hafa staðið fyrir er til framfara og gagngert sett þannig fram," segir Finnur.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira