416 þúsund í bensín á ári 8. desember 2010 06:45 Hækkun á verði eldsneytis.
Eldsneytiskostnaður við meðal fjölskyldubíl verður 416 þúsund krónur á ári, haldist verðið í 208 krónum á lítrann. Fyrir tveimur árum kostaði lítrinn 141 krónu og var árskostnaður miðað við það 282 þúsund. Hækkunin nemur 134 þúsundum, eða 47 prósentum. Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) miðar við að meðalnotkun fólksbíls á ári sé 2.000 lítrar og magnast kostnaðurinn upp þegar nýjustu hækkanir á bensínverði eru teknar með inn í reikninginn. Útsöluverð á eldsneyti hækkaði talsvert í gær þar sem lítraverðið á bensíni fór hæst upp í 209 krónur á stöðvum Shell. Olís hækkaði verðið upp í 208 krónur, en verð var að mestu óbreytt hjá N1 og sjálfsafgreiðslustöðvunum þar sem lítraverð var um 203,50 krónur. Eldsneytisverðið hefur því hækkað verulega síðustu daga en Einar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, segir í samtali við Fréttablaðið að rekja megi þá þróun til hækkana á heimsmarkaðsverði. „Þær hafa verið mjög brattar síðasta mánuðinn, um tíu prósent, en sem betur fer hefur Bandaríkjadalur gefið eftir, því annars hefði hækkunin verið meiri.“ Einar Örn segir að hátt heimsmarkaðsverð megi skýra með kuldakasti í Evrópu, auk þess sem litlar birgðir séu í Bandaríkjunum og mikil eftirspurn frá Asíu. „Ef maður skoðar síðustu tvö ár hefur heimsmarkaðsverð á bensíni næstum þrefaldast,“ segir Einar Örn og bætir því við að þótt verðið á heimsmarkaði muni eflaust lækka einhvern tíma bendi langtímaspár til þess að olíuverð muni hækka og ekki sé hægt að búast við því að útsöluverð hér á landi muni færast langt niður. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir þær hækkanir þó ekki réttlæta verðhækkun Olís og Shell hér á landi. „Það liggur fyrir að nokkur hækkun hefur verið á mörkuðunum, en við sjáum ekki þessa miklu hækkun í kortunum eins og var hjá Olís og Shell.“ Runólfur bætir því við að ekki sé á bætandi þar sem fyrir liggi auknar skattheimtur á eldsneyti, sem muni sennilega hafa í för með sér verðhækkun upp á fimm og hálfa krónu á lítrann. - þj
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira