Sósíalistar og stórkapítalistar hafa náð sátt um tvö verkefni 18. nóvember 2010 06:00 alþingi Aðventan er að nálgast og þingmenn eru farnir að ræða Icesave-málið á nýjan leik, sagði Ragnheiður Elín Árnadóttir, Sjálfstæðisflokki, við fyrstu Icesave-umræður haustsins í gær. „
Sósíalistarnir hafa náð saman við stórkapítalistana um tvö verkefni sem þeir vilja vinna að samtímis,“ sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. „Annars vegar að koma skuldum gjaldþrota banka yfir á íslenskan almenning og hins vegar að koma í veg fyrir að íslenskur almenningur fái leiðrétt stökkbreytt lán sín í íslensku bönkunum.“ Ummælin féllu í umræðu um Icesave-málið við upphaf þingfundar í gær. Tilefnið voru ummæli Jóns Sigurðssonar, forstjóra Össurar, í Ríkisútvarpinu um að óleyst Icesave-deila hefði haft mjög neikvæð áhrif á viðskiptalífið og ímynd Íslands. Magnús Orri Schram, Samfylkingu, sagði að þar sem drög að nýjum Icesave-samningi lægju fyrir hefði frést að Moody‘s ætlaði að hækka lánshæfismat íslenska ríkisins. „Slíkt hefur bein áhrif á fjármögnunarkostnað íslenskra fyrirtækja,“ sagði hann. Sigmundur Davíð sagði að mikil áróðursherferð væri nú hafin fyrir nýjum Icesave-samningi sem þó væri ekki tilbúinn. Þeir forstjórar sem mest hefðu verið á bandi ríkisstjórnarinnar í deilunni létu nú aftur á sér kræla. „Lánshæfismatsfyrirtækin [eru] meira að segja mætt til leiks í gegnum Samfylkingarmanninn á Bloomberg,“ sagði Sigmundur Davíð. „Lánshæfismatsfyrirtækin, sem hafa nákvæmlega engan trúverðugleika lengur.“ Skuldatryggingaálag íslenska ríkisins, hinn raunverulegi mælikvarði á stöðu ríkisins, hefði batnað og batnað frá því að Icesave-samkomulaginu var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu. - pg
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Sjá meira