Vill viðhalda íslömskum einkennum 31. maí 2010 05:30 Bænastund Múslimar á Íslandi eru nú yfir sex hundruð talsins. Þeir hafa í ellefu ár sóst eftir að fá lóð undir mosku í Reykjavík en ekki fengið. Á meðan hafa þeir aðstöðu í Ármúlanum. Fréttablaðið/Vilhelm
Sulaiman Abdullah Alshiddi í Sádi Arabíu og Hussein Al Daoudi í Svíþjóð hafa sett á laggirnar sjálfseignarstofnunina The Islamic Endowment in Iceland. „Tilgangur félagsins er að stuðla að því að viðhalda íslömskum einkennum úr samfélagi múslima. Að auka mikilvægi og verja íslömsk einkenni múslimskra barna,“ segir meðal annars um tilgang nýju stofnunarinnar í bókum hlutafélagaskrár. Enn fremur segir að ætlunin sé sú að hvetja múslima á Íslandi til að læra íslensku og aðstoða þá við að læra arabísku sem sé sameiginlegt tungumál múslima hérlendis. Þá segir að tilgangur stofnunarinnar sé „að kynna fyrir múslimum á Íslandi lög og samfélagsvenjur Íslands“ og að kynna fyrir þeim réttindi og skyldur einstaklings í íslensku þjóðfélagi. Þá eigi að kynna samfélag múslima fyrir Íslendingum og vera „þátttakandi í staðbundnum tómstundaiðkunum fyrir börn og unglinga sem eru undir handleiðslu þar til bærra yfirvalda.“ Salmann Tamimi, formaður Félags múslima á Íslandi, segist ekki hafa heyrt af stofnun hins nýja félags hér á landi og að forsvarsmenn þess hafi ekki verið í sambandi við Félag múslima á Íslandi. Salmann segir The Islamic Endowment vera með höfuðstöðvar í Örebro í Svíþjóð og stunda þar góðgerðar- og fræðslustarfsemi. Sulaiman Abdullah Alshiddi tilheyri yfirstéttinni í Sádi Arabíu og sé sterkefnaður. „Vonandi getur þetta nýja félag hjálpað til við byggingu mosku fyrir múslima á Íslandi,“ segir Salmann. - gar
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fleiri fréttir Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Sjá meira