Innlent

Furðar sig á vinnubrögðum

Ross Beaty, kanadískur eigandi Magma Energy og Ásgeir Margeirsson, framkvæmdastjóri Magma á Íslandi. Ásgeir segist fagna því að endanleg niðurstaða varðandi lögmæti kaupa Magma á HS Orku sé komin fram.Fréttablaðið/GVA
Ross Beaty, kanadískur eigandi Magma Energy og Ásgeir Margeirsson, framkvæmdastjóri Magma á Íslandi. Ásgeir segist fagna því að endanleg niðurstaða varðandi lögmæti kaupa Magma á HS Orku sé komin fram.Fréttablaðið/GVA
Fréttaskýring

Heldur samningurinn um kaup Magma á HS Orku?

Lögskýringarleið sú sem sögð er sýna fram á að kaup Magma Energy í Svíþjóð á HS Orku kunni að hafa verið óheimil á ekki við samkvæmt því sem segir í minnisblaði lögfræðings iðnaðarráðuneytisins sem lagt var fyrir ráðherra í gær. Þrjár af fjórum lagaskýringarleiðum sem dregnar eru upp í skýrslu nefndar um orku- og auðlindamál um kaup Magma á HS Orku benda til lögmætis kaupanna. Skýrsla nefndarinnar var lögð fyrir ríkisstjórn í gær.

„Í skýrslunni kemur meðal annars fram að skoðun nefndarinnar á þeim samningum sem hún fékk aðgang að leiddi ekki í ljós neina augljósa annmarka. Frá lagalegum sjónarhóli sé ekki tilefni til að gera athugasemdir við samningana,“ segir í tilkynningu.

Unnur G. Kristjánsdóttir, formaður nefndar um erlenda fjárfestingu, fagnar því að nefndin hafi með þessu staðfest þá niðurstöðu sem nefnd hennar hafi áður komist að. Um leið kveðst hún undrast vinnubrögð Magmanefndarinnar. „Nefndin fékk gögn frá okkur en hafði aldrei fyrir því að tala við okkur að eigin frumkvæði eða leggja fyrir okkur neinar vangaveltur,“ segir hún og undrast að hafa ekki fengið tækifæri til að sjá skýrsluna og gera athugsemdir áður en hún var gerð opinber í gær. „Þetta tel ég vera afar gagnrýnivert.“

Unnur segir að í skýrslu Magmanefndarinnar sé ekki horft til þess að nefnd um erlenda fjárfestingu sé stjórnsýslunefnd og hefði því ekki getað vísað málum til dómstóla líkt og talið sé í skýrslunni að hún hefði átt að gera.

Þá hafi nefnd um erlenda fjárfestingu, þrátt fyrir ítarlega leit og gagnaöflun, ekki getað sýnt fram á að Magma Sweden væri ekki raunverulegt fyrirtæki. „Fyrirtækið er með fullt af peningum og bankareikninga og ætlar sér kannski að fjárfesta í fleiri löndum en Íslandi,“ segir Unnur og bætir við að nefnd hennar hafi meira að segja fengið staðfest að gjaldeyrisyfirfærslur vegna kaupanna á HS Orku hafi allar verið á vegum Magma Sweden. Eins sé fyrirtækjaformið algengt. „Ég held meira að segja að Samherji eigi svona fyrirtæki. Það rekur útgerðina þeirra í Þýskalandi.“

Heimildir blaðsins herma að innan Magmanefndarinnar hafi togast á ólík sjónarmið um að hvaða niðurstöðu mætti komast. Því hafi í raun verið málamiðlun að setja upp ólíkar leiðir í lögskýringu og segja sem svo að ekki yrði skorið úr álitamálum nema fyrir dómi. Lögmenn sem rætt hefur verið við telja ólíklegt að sú eina lögskýringarleið af fjórum sem sýni ólögmæti kaupa Magma myndi verða tekin gild fyrir dómi. Til þess þyrfti bæði að falla frá hefðbundnum lögskýringarsjónarmiðum og færa sönnur á að dótturfyrirtæki Magma í Svíþjóð væri einhvers konar gervifyrirtæki.

olikr@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×