Innlent

Dregið úr fellibylnum Karli í Mexíkó

Fellibylurinn Karl.
Fellibylurinn Karl.

Dregið hefur í krafti fellbylsins Karls sem skall á Mexíkó í gær en miklar rigningar fylgja óveðrinu. Rúmlega sextugur maður og tveggja ára stúlka létust þegar aurskriða féll á hús í bænum Nexti-capan vegna stormsins.

Tveir aðrir slösuðust. Stjórnvöld hafa þurft að loka eina kjarnorkuveri landsins og hætta starfsemi á olíuborpöllum vegna veðursins.

Vindhraðinn náði 185 kílómetrum á klukkustund þegar hann var mestur.

Miklar skemmdir hafa orðið á mannvirkjum í borginni Veracruz þar sem stormurinn skall fyrst á, en hann stefnir nú suður fyrir Mexíkóborg en er eins og áður sagði mun veikari en áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×