Innlent

Jón Gnarr vill Héraðsdóm Reykjavíkur burt

Jón Gnarr.
Jón Gnarr.

„Ég vil ekki hafa Héraðsdóm á Lækjartorgi," skrifar Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, í dagbók borgarstjórans á Facebook í dag.

Hann bætir við að hann haldi að það ætti að flytja héraðsdóminn eitthvað annað svo það væri hægt að nýta húsnæðið í eitthvað lifandi og skemmtilegt. Sjálfur nefnir Jón markaði og menningarstarfsemi.

Héraðdómur hefur þótt þyrnir í augum margra skipulagsfræðinga og vilja margir meina að mannlíf gæti blómstrað á torginu ef starfsemi héraðsdómsins yrði færð annað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×