Ákærur gætu verið samþykktar með minnihluta atkvæða Heimir Már Pétursson skrifar 18. september 2010 18:38
Svo gæti farið að ákæra á hendur fyrrverandi ráðherrum verði samþykkt með minnihluta atkvæða á Alþingi, vegna þess að hjásetuatkvæði eru ekki talin með. Mikil óvissa ríkir um hvernig alþingismenn greiða atkvæði um tvær þingsályktunartillögur um ákæru á hendur annars vegar fjórum og hins vegar þremur fyrrverandi ráðherrum. Það er þó nokkuð ljóst að 16 þingmenn Sjálfstæðisflokksins munu ekki greiða atkvæði með tillögunum og að 15 þingmenn Vinstri grænna muni greiða atkvæði með ákæru á hendur fjórum ráðherrum ásamt þremur þingmönnum Hreyfingarinnar. Alger óvissa ríkir um afstöðu 20 þingmanna Samfylkingarinnar, en samkvæmt heimildum fréttastofunnar er næsta víst að þar á bæ muni þingmenn ekki allir greiða eins atkvæði. Þá er talið að það sama gildi um þingmenn Framsóknarflokksins. „Í okkar þingflokki lá fyrir að hver og einn ætti að taka ákvörðun á sínum forsendum en ekki flokksforsendum," segir sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Sigmundur segir menn enn vera að skoða málið og ómögulegt að sjá fyrir hvernig atkvæði skiptist. „Umfræðan um þetta er orðin alpólitísk," segir Sigmundur Davíð. Í atkvæðagreiðslum um mál á Alþingi telst hjáseta þingmanna ekki með, bara já og nei atkvæði. Tæknilega gæti það því gerst að t.d. 23 þingmenn vildu ákæra, átján vildu það ekki en 22 þingmenn sætu hjá. Þá væri ákæra samþykkt með atkvæðum minnihluta þingmanna. Aðspurður hver væri versta mögulega niðurstaðan svarar Sigmundur: „Versta niðurstaðan er sú að þetta dragist á langinn og að engin niðurstaða fáist í málið og grafi undan trúverðugleika stjórnmálanna," segir Sigmundur sem þykir umræðan þegar einkennast af flokkapólitík.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira