Innlent

Erilsöm nótt í Reykjavík

Valur Grettisson skrifar

Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Fjórir ökumenn voru stöðvaðir fyrir ölvunarsakstur og mikið var um útköll vegna hávaða í heimahúsum. Þá var nokkuð um pústra á milli einstaklinga en engar líkamsárásir hafa verið kærðar.

Hátt í tíu manns fengu að sofa úr sér í fangageymslum lögreglunnar. Varðstjóri áréttar að nóttin hafi þó gengið mjög vel og engin meiriháttar mál komu upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×