Innlent

Stefán Sölvi í 10-manna úrslit í Sterkasta manni heims

Stefán Sölvi Pétursson, í miðjunni, er sterkasti maður Íslands.
Stefán Sölvi Pétursson, í miðjunni, er sterkasti maður Íslands.

Sterkasti Maður íslands, aflraunamaðurinn Stefán Sölvi Pétursson, er kominn í 10-manna úrslit í keppninni um Sterkasta Mann Heims 2010 sem haldin er í borginni Sun City í Suður-Afríku.

Þrjátíu sterkustu mönnum heims var boðið á mótið. Er þetta í fyrsta sinn í 11 ár sem Íslendingur nær þessum árangri í keppninni. Riðlakeppni lauk í dag en úrslitin verða á þriðjudag og miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×