Straumur fólks til Stígamóta 18. september 2010 08:00 Guðrún Jónsdóttir er talskona Stígamóta. Mynd/ GVA.
Hópur eldra fólks hefur leitað til Stígamóta undanfarið vegna kynferðisofbeldis sem það kveðst hafa orðið fyrir og þaggað hafi verið niður í skjóli embættisvalds. Aðsóknin er svo mikil að þeir sem eru að koma í fyrsta skipti þurfa að bíða á þriðju viku áður en þeir komast að, sem er einstök staða. Þetta segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. „Þjóðfélagsumræðan að undanförnu um ofbeldi hefur hreyft mjög við fólki sem í áratugi hefur burðast eitt með leyndarmál sín," segir Guðrún. „Það er eins og fólki sé að detta í hug í fyrsta skipti að það geti átt rétt á uppreisn æru. Það leyfir sér að þrá staðfestingu á að brotið hafi verið á því." Guðrún kveðst ekki hafa talið saman hversu margir nýrra skjólstæðinga hafi orðið fyrir ofbeldi í skjóli einhvers konar embættisvalds. Tölur um fjölda og eðli brota liggi ekki fyrir fyrr en í árslok. „En mörg þessara mála snúast um ofbeldi af hendi manna í slíkum valdastöðum," útskýrir Guðrún. „Þá er ég ekki einungis að tala um kirkjuna heldur einnig fleiri þjóðfélagsstofnanir. Mörg málanna eru fyrnd og sumir þeirra ofbeldismanna sem um er að ræða eru dánir. En eftir sitja konur og karlar sem umræðan að undanförnu hefur hreyft við, þannig að þetta fólk er í uppnámi. Það er langt síðan að ég minnist þess að samfélagsumræða hafi skilað fjölgun á borð við þessa inn til okkar." Guðrún segir að fólkið sem leiti nú til Stígamóta komi til að tjá sig um löngu liðin atvik sem séu núna að trufla daglegt líf þess. „Fyrir fólki er draumurinn um viðurkenningu á ofbeldinu ný tilfinning þó að sjaldnast sé hægt að uppfylla hann. En segja má að það sé skref í rétta átt að fólk geri kröfur fyrir sjálft sig. Að sumu leyti er þarna um að ræða jákvæð áhrif í kjölfar málsins hennar Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og fleiri kvenna," segir Guðrún. - jss
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira