Innlent

Reyndu að sprengja páfann í loft upp

Benedikt hitti David Cameron.
Benedikt hitti David Cameron.

Benedikt páfi sextándi átti fund með David Cameron forsætisráðherra Bretlands á þriðja degi opinberrar heimsóknar sinnar til landsins í dag.

Lögregla í Lundúnum hefur handtekið sex menn sem grunaðir eru um tilræði við páfa með því að koma sprengju fyrir í ruslagámi við leið páfans.

Talsmenn páfagarðs segja að engar breytingar verði gerðar á skipulagi heimsóknar hans vegna þessa. Að loknum fundi Beneditks með Cameron í morgun tók hann þátt í messu í Westminster dómkirkjunni.

Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra var meðal messugesta en hann snérist til kaþólskrar trúar þegar hann gekk að eiga Chearie eiginkonu sína sem er kaþólskrar trúar. Seinna í dag fara fram mótmæli vegna heimsóknar páfa og munu mótmælendur ganga frá Hyde Park að Downingstræti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×