Innlent

Fimmtán ára handtekinn fyrir innbrot

Valur Grettisson skrifar

Fimm piltar voru handteknir við tvö innbrot í nótt á Selfossi. Sá yngsti sem var handtekinn var fimmtán ára gamall.

Að sögn lögreglunnar brutu piltarnir sér leið inn á heimilin. Piltarnir eru grunaðir um að hafa stolið áfengi af öðru heimilinu en í hinu innbrotinu var ekkert tekið.

Yfirheyrslur hófust yfir drengjunum nú í morgun. Búið var að hafa samband við foreldrana. Þá var athæfið einnig tilkynnt til barnaverndaryfirvalda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×