Nokkur frumvörp afgreidd á lokametrunum 10. september 2010 03:30 Alþingismenn hyggjast afgreiða hin og þessi frumvörp sem lög fyrir lok næstu viku. Fréttablaðið / gva
Nokkur stjórnarfrumvörp hafa verið afgreidd til nefnda og þriðju umræðu á Alþingi í fyrradag og í gær. Reyna á að afgreiða þau sem lög frá þinginu áður en því verður slitið í lok næstu viku. Í gær var frumvarp um breytingar á stjórnarráðinu afgreitt sem lög. Það kveður á um sameiningu dómsmála-, mannréttinda og samgönguráðuneytanna í eitt innanríkisráðuneyti og heilbrigðis-, félags- og tryggingamálaráðuneytisins í eitt velferðarráðuneyti. Þær breytingar eiga að taka gildi um áramót. Þá munu iðnaðar-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti sameinast í atvinnumálaráðuneyti og umhverfisráðuneytið einnig verða ráðuneyti auðlindamála. Síðari breytingarnar munu taka gildi 1. apríl. 2011. Þá var frumvarp umhverfisráðherra til skipulagslaga, sem kveða á um landnýtingu til framtíðar, afgreitt til nefndar. Frumvarpið er í 57 liðum og mjög viðamikið. Frumvarp iðnaðarráðherra um afnám iðnaðargjalda, í samræmi við dóm Mannréttindadómstóls Evrópu um ólögmæti þess, og endurráðstöfun þeirra gjalda sem þegar hafa verið innheimt, var einnig afgreitt til þriðju umræðu, sem og þrjú frumvörp dómsmálaráðherra um aukin réttindi innflytjenda og hælisleitenda. Í gær fór svo frumvarp um stjórnlagaþing einnig til þriðju og síðustu umræðu. - sh
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira