Vill að kjarabætur skili sér til allra 14. september 2010 17:54 Eiríkur Jónsson, formaður kennarasambandsins.
Eiríkur Jónsson, formaður kennarasambandsins, segir einhug ríkja í Kennarasambandinu um áherslur í komandi kjarasamningum: Að verja réttindi félagsmanna, sækja kjarabætur sem skila sér til allra og krefjast þess að sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga verði virtur. Þetta kemur fram í viðtali sem birtist í næstu Skólavörðu. Þá segir Eiríkur í viðtalinu: „Kennarasambandið hefur haft það á stefnuskrá sinni árum saman að meta beri menntun og ábyrgð til launa. Nú er verið að lengja kennaramenntun og því tekur lengri tíma að afla sér réttinda til kennslu en áður var. Þetta er grundvallaratriði sem meta verður til launa. Kennarasambandið mun krefjast þess að kjarabætur í komandi kjarasamningum verði raunverulegar og að þær skili sér til allra félagsmanna en ekki einungis þeirra sem lægst hafa launin. KÍ hefur alla tíð stutt hækkun lægstu launa og gerir enn en nú er algjörlega nauðsynlegt að hækkanir nái líka til þeirra sem ofar eru. Þeir hafa margir hverjir tekið á sig verulega mikið aukna skattbyrði ásamt því að yfirvinna hefur minnkað eða horfið og þola þannig mun meiri kaupmáttarskerðingu." Aðspurður hvort KÍ taki þátt í samfloti við gerð kjarasamninga svarar Eiríkur: „Félög innan KÍ munu örugglega ekki taka því að fá upp í hendurnar uppskrift af kjarasamningum sem samin er af SA og ASÍ eins og raunin var síðast. Það er ekkert sem mælir gegn því að aðilar hafi með sér samstarf við gerð kjarasamninga í haust en forsendur þess verða að vera þær að sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga sé virtur að fullu." Viðtalið má einnig nálgast hér.
Mest lesið Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Innlent Fleiri fréttir Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Sjá meira