Lífið

Flugur gegn krabbameini

Gústaf Gústafsson og krabbaflugan '07.
Gústaf Gústafsson og krabbaflugan '07.

Krabbameinsfélag Íslands efnir nú í annað sinn til Krabbaflugunnar, hnýtingakeppni í samvinnu við Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Veiðihornið og Veiðikortið, þar sem færustu hnýtarar landsins eru hvattir til að hanna silungaflugu til styrktar félaginu.

Keppnin var fyrst haldin árið 2007 þegar keppt var um bestu laxafluguna.

„Sigurflugan úr þeirri keppni er mjög vel heppnuð og meira að segja ég hef veitt á hana lax," segir Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélagsins og brosir við.

„Hugmyndin spratt upphaflega frá því að ég las bandaríska grein um hvernig flugukast, að kasta flugu með stöng, er notað í endurhæfingu krabbameinssjúklinga og þá sérstaklega vegna brjóstakrabbameins.

Út frá því þróaðist að halda fluguhnýtinganámskeið fyrir okkar skjólstæðinga hér í Krabbameinsfélaginu og lagði SVFR okkur lið með að útvega Sigurð Pálsson málarameistara og fluguhnýtara með meiru sem kennara.

Það var einnig ástæða þess að ég fór sjálfur að hnýta flugur, og svo veiða með þeim. Keppnin fylgdi svo í kjölfarið og var ákveðið að bjóða öllum að taka þátt, enda er Krabbameinsfélagið félag allra," bætir Gústaf við.

Vinningsflugan verður framleidd af félögum okkar í Veiðihorninu og seld í verslunum þeirra til styrktar starfi Krabbameinsfélagsins.

„Við erum ekki ennþá búin að koma okkur upp kastkennslu en ég ráðlegg öllum að skoða fluguveiði, hún er bæði skemmtileg og heilsusamleg.ttúran er yndisleg og maður getur ekki eitt of miklum tíma við að njóta hennar, og svo er silungur alveg rosalega hollur og góður matur," segir Gústaf og bendir áhugasömum á að lesa nánar um keppnina á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.