Rauðvínið reyndist vera amfetamínbasi 19. nóvember 2010 06:00 Daniel Danielewicz, tæplega fertugur að aldri, mætti fyrir Héraðsdóm Reykjaness í gær. Hann var tekinn með rúmlega lítra af amfetamínvökva í ágúst.fréttablaðið/GVA
Þrjátíu og sjö ára karlmaður, Daniel Danielewicz, kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær hafa talið sig vera að færa samlanda sínum hér á landi rauðvín, skinku, bjúgu og lyf, þegar hann kom til landsins í ágúst síðastliðnum. Í „rauðvínsflöskunni“ reyndist vera rúmlega einn lítri af amfetamínvökva. Úr honum hefði mátt vinna rúmlega átta kíló af amfetamíni, sem hægt hefði verið að selja fyrir 25 milljónir króna, að því er fram kom hjá saksóknara í málinu, Júlíusi Kristni Magnússyni. Maðurinn, sem er pólskur ríkisborgari og var að koma frá Póllandi, bar fyrir rétti í gær að hann hefði ekki haft hugmynd um hvað var í flöskunni. „Ég kom hingað af því að mér hafði verið lofað að ég fengi vinnu á Íslandi,“ sagði hann. „Kunningi minn í Póllandi, Pawo, lét mig hafa þessar upplýsingar,“ bætti maðurinn við en kvaðst ekki vita eftirnafn kunningjans. Hann sagði að Pawo hefði sagt sér að á Íslandi væri maður, einnig pólskur, sem gæti útvegað vinnu. Sá maður hefði greitt fyrir farið til Íslands. „Ég þurfti bara að sýna passa á flugvellinum,“ útskýrði flutningsmaður amfetamínsins, sem sagði flugmiðann til Íslands hafa beðið sín þar. „Pawo lét mig hafa flöskuna, eitthvað matarkyns og lyfin, sem ég átti að afhenda manninum á Íslandi. Ég var ekkert að velta því fyrir mér hvað væri í flöskunni.“ Maðurinn kvaðst hafa átt að fá vinnu við rafvirkjun hér. Sér hefði verið sagt að búið væri að ganga frá öllu varðandi dvölina hér. Hann hefði átt að gista á hóteli fyrstu nóttina en síðan í fyrirtækinu sem hann fengi vinnu hjá. Þar væri gistiaðstaða fyrir hendi. Spurður um þann sem átti að útvega honum vinnuna sagði hann að sá héti Polec. Eftirnafnið vissi hann ekki, hafði aldrei séð manninn og þekkti ekkert til hans. Jón Halldór Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður sem bar vitni í héraðsdómi sagði að greinilega hefði verið föndrað við flöskuna með amfetamínvökvanum. Meðal annars hefði sílikonkítti verið komið fyrir í innsigli hennar svo hún læki öruggglega ekki. Halla Geirlaug Gunnlaugsdóttir tollvörður sagði að flaskan og fatnaður hefðu verið í tösku mannsins. Hún kvaðst hvorki minnast matvæla né lyfja í töskunni. jss@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira