Sýndarmennska að skipa starfshóp um fangaflug 6. desember 2010 19:01
Starfshópur sem sagður var eiga að kanna fangaflug CIA í íslenskri lofthelgi var sýndarmennska ein, samkvæmt Wikileaks-skjali úr bandaríska sendiráðinu. Raunverulegt hlutverk hópsins hafi verið að koma höggi á Steingrím J. Sigfússon og láta líta út fyrir að stjórnvöld væru eitthvað að aðhafst. Starfshópinn skipaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkisráðherra árið 2007. Í Wikileaks skjali sem skrifað er í júlí sama ár er greint frá samtölum starfsmanna bandaríska sendiráðsins í Reykjavík, við starfsmenn utanríkisráðuneytisins. Samkvæmt þeim virðist vinna starfshópsins ekki hafa snúist um rannsókn á hugsanlegum mannréttindabrotum eða hvort fangar væru fluttir til landa þar sem fyrirhugað væri að pynta þá, heldur íslenska pólitík. Æfing í gegnsæi eru orðin sem notuð erum um skipan starfshópsins og því er lýst þegar starfsmaður mannréttindaskrifstofu utanríkisráðuneytisins vekur sérstaka athygli á því að talað sé um skoðun á fangaflugi, en ekki rannsókn í yfirlýsingu stjórnvalda. Það undirstriki að utanríkisráðuneytið hafi engar áætlanir, né umboð, til þess að hefja formlega rannsókn. Skipan starfshópsins væri hugsuð til að vængstífa Steingrím J. Sigfússon áður en honum gefist færi á að valda utanríkisráðherranum meiri vandræðum. „Mikilvægast er að það líti út fyrir að við séum að gera eitthvað," segir starfsmaður utanríkisráðuneytisins en hann átti einmitt sæti í starfshópi ráðherra sem falið var að kanna fangaflug CIA í íslenskri lofthelgi. Niðurstaða starfshópsins var að þessar vélar hefðu farið um íslenska lofthelgi og lent á Íslandi, en engin leið væri að sannreyna eftir á hvort um ólöglega fangaflutninga hefði verið að ræða nema í fullri samvinnu þeirra sem að slíku flugi stóðu. Steingrímur J. Sigfússon segir að sér hafi verið full alvara með starfi hópsins og hann hafi ætlast til hins sama af þáverandi stjórnvöldum. Af skjölunum að ráða virðist svo hins vegar ekki hafa verið. Hvorki fyrrverandi utanríkisráðherra Ingibjörg Sólrún Gísladóttir né núverandi, Össur Skarphéðinsson, þekktust boð um að tjá sig um málið við fréttastofu í dag.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira