Gera ráð fyrir að lögreglumönnum fækki Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. apríl 2010 08:00 Stjórnvöld gera ráð fyrir fækkun lögreglumanna. Mynd/ Pjetur.
Fjármálaráðuneytið gerir ráð fyrir að lögreglumönnum og öðru starfsfólki lögreglunnar fækki á næstu árum. Þetta verði gert með því að nánast engar nýráðningar komi á móti fækkun vegna þeirra starfsmanna sem fara á eftirlaun eða hverfa til annarra starfa. Þetta kemur fram í umsögn fjármálaráðuneytisins um nýtt frumvarp um breytingar á lögreglulögum sem dómsmálaráðherra mælti fyrir á föstudaginn. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að löggæsla verði að fullu aðskilin frá sýslumannsembættum og lögregluumdæmin stækkuð og þeim fækkað úr 15 í 6. Gert er ráð fyrir að verkefni ríkislögreglustjóra verði endurmetin til þess að ná fram aukinni samlegð og fækkun í yfirstjórn. Markmið breytinganna eru í meginatriðum tvíþætt, annars vegar að ná fram hagræðingu í rekstri og hins vegar að auka faglega burði lögreglunnar á landsbyggðinni. Fjármálaráðuneytið segir að með þessu sé leitast við að ná fram betri stýringu á fjárveitingum til lögreglunnar, sérstaklega í ljósi þess að fjárveitingar komi til með að dragast saman á næstu árum. Gera megi ráð fyrir að það gerist með fækkun yfirmanna vegna sameinaðra lögregluumdæma, með því að ráða ekki í þær stöður sem losni, með samþættingu verkefna á landsvísu og endurskipulagningar á innkaupaferli lögreglunnar, auk þess sem fjármunum verði betur skipt eftir íbúafjölda og umferðar í hverju umdæmi. Fjármálaráðuneytið segir að verði frumvarpið óbreytt að lögum megi gera ráð fyrir að heildarsparnaður geti orðið á bilinu 330-450 milljónir króna á ári. Allt eftir því hvað starfsmönnum verði fækkað mikið í samræmi við möguleika sem frumvarpið skapi. Hins vegar liggi ekki fyrir mat á mannaflsþörf.
Mest lesið Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Innlent Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Innlent Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Erlent Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Erlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Innlent Fleiri fréttir Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Sjá meira