Innlent

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar á morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Herjólfur siglir til Landeyjarhafnar á morgun.
Herjólfur siglir til Landeyjarhafnar á morgun.
Herjólfur mun sigla samkvæmt áætlun til Landeyjahafnar í fyrramálið. Þetta var ákveðið eftir dýptarmælingar í höfninni síðdegis. Fyrsta brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan níu og frá Landeyjahöfn klukkan hálfellefu.

Landeyjahöfn hefur verið lokuð undanfarna daga og hefur Herjólfur siglt til Þorlákshafnar á meðan að dýpkun Landeyjarhafnar hefur staðið yfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×