Bændur vilja sömu kjör og einstaklingar í gengislánum 17. september 2010 15:38
Nauðsynlegt er að staða bænda sem tóku gengisbundin lán sé skýrð hið fyrsta. Eðlilegt sé að skuldamál bænda séu meðhöndluð á sama hátt og skuldamál einstaklinga. Þetta er mat Bændasamtaka Íslands í kjölfar dóms Hæstaréttar frá því í gær þar sem kveðið er á um vaxtakjör á ólöglegum gengisbundnum lánum. Fjallað er um málið á vefsíðu Bændasamtaka Íslands. Jóhanna Lind Elíasdóttir, rekstrarráðunautur hjá Bændasamtökunum, segir það sitt mat að eðlilegt sé að skuldamál bænda, sem og annarra einyrkja, verði meðhöndluð með sambærilegum hætti og skuldamál einstaklinga og heimila. „Í tilfellum bænda er atvinnurekstur þeirra þannig samtvinnaður við heimilisrekstur að annað væri í mínum huga óhugsandi. Á bak við lán bænda eru veð í bújörðum þeirra og heimilum. Þetta á bæði við um bændur sem eru með rekstur á eigin kennitölu og eins við þá bændur sem stofnað hafa einkahlutafélög utan um reksturinn," segir Jóhanna. Jóhanna segir það jafnframt sitt mat að dómurinn frá því í gær hafi því miður ekki svarað nógu mörgum spurningum. „Ennþá er verulega á reiki til hvaða lána dómurinn nær og því er útilokað að segja hvað hann muni þýða fyrir bændur að svo komnu máli." Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, var í Kastljósi í gær spurður um hvort ekki væri mótsögn í því að bændur og lítil fyrirtæki væru sett í sama flokk og stórfyrirtæki. Árni Páll svaraði ekki beint til um hvaða afstaða yrði tekin varðandi skuldamál bænda en sagði að nauðsynlegt væri að taka á málum í hverju tilviki fyrir sig. Gera yrði kröfu á bankastofnanir um að þau gangi til samstarfs við ríkisvaldið um úrlausn skuldavandans. Í ljósi orða ráðherrans og yfirlýsingar ráðuneytisins frá því í gær er á engan hátt ljóst hvernig skuldamál bænda verða meðhöndluð. Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, segir augljóst að lánamál bænda hljóti í öllum meginatriðum að falla í flokk lána til handa einstaklingum.„Þarna er um að ræða rekstur fyrirtækja og heimila sem er óaðskiljanlegur. Því leggja Bændasamtökin þunga áherslu á að stjórnvöld tryggi eðlilega málsmeðferð fyrir bændur í kjölfar þessa dóms og að þeir eigi kost á að fá meðhöndlun sem einstaklingar og heimili. Bændasamtökin hafa ítrekað bent á nauðsyn þess að tekið verði á þessum málum af sanngirni og festu fyrir þau heimili sem um ræðir og einnig til að tryggja áfram fæðuöryggi og byggð í landinu," segir Eiríkur.
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Tveimur sagt upp á Bifröst Innlent Fleiri fréttir „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Sjá meira