Innlent

Lengsta ferðasumarið á Vestfjörðum

Hjónin Hafsteinn og Kiddý eru búin að vera byggja upp sjóferðir sínar um Hornstrandir og Djúp.
Hjónin Hafsteinn og Kiddý eru búin að vera byggja upp sjóferðir sínar um Hornstrandir og Djúp.

Ferðaþjónustan á Vestfjörðum er að upplifa lengsta ferðamannasumarið til þessa. Erlendir ferðahópar eru enn að mæta í Hornstrandasiglingar, sem venjulega hafa hætt um miðjan ágústmánuð.

Hjónin Hafsteinn og Kiddý eru búin að vera byggja upp sjóferðir sínar um Hornstrandir og Djúp í tuttugu ár og komin með þrjá báta sem taka samtals um 120 farþega. Spurð um hvernig sumarið hafi verið svarar Guðrún Kristjánsdóttir, betur þekkt sem Kiddý, að það hafi gengið ljómandi vel. Veðrið hafi verið yndislegt þó að það hafi ekki byrjað vel.

En sumarið er sko alls ekki búið. Þau voru í morgun að gera tvo báta klára enda 65 manna hópur norskra ferðamanna á leið niður á bryggju. Þetta eru arkitektanemar og kennarar þeirra sem ætla að sigla út í eyna Vigur í Ísafjarðardjúpi og dvelja þar dagsstund við að teikna upp gömlu bæjarhúsin.

Þau Hafsteinn og Kiddý hafa ekki átt því að venjast að fá stóra hópa erlendra ferðamanna um þetta leyti árs. Hafsteinn Ingólfsson segir að þetta sé langlengsta sumar frá því þau hófu rekstur. Meira að segja eigi eftir að koma eitt skemmtiferðaskip eftir helgi og þau fari með farþega af því í friðlandið á Hornströndum; til Hesteyrar í Jökulfjörðum.

Norsku arkitektanemarnir eru búnir að dvelja á Ísafirði síðustu fjóra daga og hafa sett svip sinn á bæinn. Kiddý segir þá hafa farið víðsvegar um bæinn með blokkirnar sínar að teikna upp hús. Þetta sé innspýting og svakalega gott að fá hóp slíka hópa.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×