Innlent

Kringluþjófur gómaður á kjúklingastað

Erla Hlynsdóttir skrifar
Öryggisverðir Kringlunnar víla ekki fyrir sér að hlaupa uppi bófa.
Öryggisverðir Kringlunnar víla ekki fyrir sér að hlaupa uppi bófa.

Lögreglan handtók mann á Kjúklingastaðnum í Suðurveri nú um hádegisbilið. Maðurinn hafði hlaupið undan öryggisvörðum Kringlunnar, yfir Kringlumýrarbrautina og inn á kjúklingastaðinn. Öryggisverðirnir náðu að góma manninn þar og óskuðu eftir aðstoð lögreglu.

Maðurinn er sakaður um að hafa stolið úr Kringlunni og höfðu öryggisverðir þvi afskipti af honum.

Maðurinn er nú í yfirheyrslum hjá lögreglu.

 

Viðbót klukkan 15.14:

Maðurinn játaði brot sitt við yfirheyrslur og var sleppt að þeim loknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×