Innlent

Þingmenn vilja öll gögn upp á borðið

Ólöf Nordal.
Ólöf Nordal.

Þingmenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks gera athugasemdir við að fá ekki að sjá öll þau gögn sem þingmannanefndin um ráðherraábyrgð hafði undir höndum. Þeir segjast ekki geta tekið ákvörðun um hvort ákæra skuli fyrrverandi ráðherra fyrr en trúnaði verði aflétt. Umræður um ákærur á hendur ráðherrunum hófust á Alþingi í morgun.

Áður en umræða hófst um þingsályktunartillögur um ákærur gegn fjórum fyrrverandi ráðherrum fyrir brot gegn ráðherraábrygð bað Ólöf Nordal, þingmaður sjálfstæðisflokks um orðið. Hún gagnrýndi að fá ekki í hendur gögn sem þingmannanefndin hafði til grundvallar sinni niðurstöðu. Þingmenn úr röðum Samfylkingarinnar voru sama sinnis.

Atli Gíslason formaður þingmannanefndarinnar sagði að nefndin væri bundin trúnaði um ýmiss gögn og þann trúnað væri ekki hægt að rjúja. Nefndin mun hins vegar funda nú í hádeginu og ræða hvort hægt sé að aflétta trúnaði svo þingmenn geti fengið þau gögn sem nefndin vann með.

Formenn þingflokkan munu einnig funda í hádeginu með forseta Alþingis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×