Innlent

Nýr bæjarstjóri tekinn við í Fjarðabyggð

Páll Björgvin Guðmundsson hefur tekið við embætti bæjarstjóra Fjarðabyggðar. Helga Jónsdóttir, sem áður gegndi embættinu, afhenti honum lyklavöldin í lok bæjarstjórnarfundar í gær.

Auglýst var eftir bæjarstjóra og sóttu átján um starfið. Þeim var öllum hafnað og ákveðið að ganga til samninga við Pál Björgvin.

Páll hefur starfað sem  bankastjóri Íslandsbanka á Austurlandi undanfarin ár en var áður fjármálastjóri Fjarðabyggðar.  Páll býr í Neskaupstað með eiginkonu sinni Hildi Ýr Gísladóttur félagsfræðingi og þremur börnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×