Innlent

Laug að hún bæri barn undir belti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag konu á þrítugsaldri í skilorðsbundið fangelsi fyrir ærumeiðandi aðdróttanir. Konan sendi bréf á fyrrum samnemanda sinn í flugumferðarstjórnarnámi og sagðist vera ófrísk eftir eiginmann hennar. Konan sem fékk bréfið var þá í miðjum próflestri.

Eiginkonan fór á pósthúsið þaðan sem bréfið var sent, leitaði aðstoðar lögmanns og fékk leyfi til að skoða myndir úr eftirlitsmyndavélum pósthússins. Það var þannig sem hún komst að því að fyrrverandi skólasystir hennar úr flugumferðarstjórnarnáminu hafði sent henni bréfið, eftir því sem fram kom í kvöldfréttum RÚV.

Konan sem sendi bréfið játaði að hafa sent bréfið við yfirheyrslur hjá lögreglunni. Hún hafði aldrei hitt eiginmanninn og gat ekki gefið skýringar á bréfaskrifunum. Konan var ákærð fyrir ærumeiðingar, dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 200 þúsund krónur í miskabætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×