Innlent

Fékk nýtt hjarta í Svíþjóð

Erla Hlynsdóttir skrifar
Pálfríður Sigurðardóttir er laus af gjörgæslunni
Pálfríður Sigurðardóttir er laus af gjörgæslunni
Pálfríður Sigurðardóttir greindist með veiru í hjarta fyrir tíu árum, þá aðeins 29 ára gömul. Hún fékk nýtt hjarta á sjúkrahúsi í Svíþjóð fyrir örfáum vikum eftir að hafa glímt við erfið veikindi á undanförnum mánuðum. „Ég er aðeins byrjuð að labba aftur. Þetta er allt í rétta átt. Það koma samt dagar þar sem heilsan er upp og niður," segir hún.

Engin lækning fannst

Pálfríður þurfti að hætta að vinna þegar hún greindist með veiruna þar sem hjarta hennar stækkaði mikið og afköst þess minnkuðu. Pálfríður var þá einstæð móðir með tæplega árs gamlan dreng og hefur róðurinn verið þungur fjárhagslega.

Engin lækning fannst við sýkingunni og undir það síðasta var blóðflæði frá hjartanu orðið aðeins um tíu prósent af því sem eðlilegt er. Pálfríður var orðin algjörlega ósjálfbjarga og dvaldist á sjúkrahúsi hér á landi svo mánuðum skipti áður en hún fékk pláss á sjúkrahúsi í Svíþjóð þar sem hún fékk nýtt hjarta.

Á ungan son

Systir Pálfríðar dvaldist hjá henni eftir aðgerðina en hún var í yfir þrjár vikur á gjörgæslu. Pálfríður losnaði af gjörgæslunni í þessari viku. Hún er nú ein í Svíþjóð en heyrir daglega í fjölskyldunni sinni. „Ég er með Skype og MSN," segir hún. Þannig nær hún að halda góðu sambandi við son sinn, sem nú er á ellefta ári og dvelur hjá ömmu sinni.

Eftir aðgerðina þyngdist Pálfríður um 13 kíló vegna vökvasöfnunar og hafði það enn frekari áhrif á heilsu hennar. Hún hefur þó þegar náð aftur af sér níu kílóum. Aðgerðin sjálf gekk vel en hægri hluti gjafahjartans virkar ekki sem skyldi. Því er ljóst að hún þarf að fá gangráð til að tryggja að nýja hjartað starfi eðlilega. Pálfríður kemur því til með að dvelja í mánuð til viðbótar í Svíþjóð, hið minnsta. Þá tekur við árs endurhæfing á Íslandi.

Skólafélagarnir standa fyrir söfnun



Pálfríður er frá Stafholtsey í Borgarfirði og vegna erfiðrar stöðu hennar hafa gömlu skólafélagar hennar frá Kleppjárnsreykjum sett af stað söfnun. Söfnunarfénu er ætlað að standa straum af kostnaði Pálfríðar vegna veikinda hennar og mögulega til að greiða fyrir ferð sonar hennar til Svíþjóðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×