Innlent

Svifryksmengun yfir heilsuverndarmörkum í dag

Aska frá svæðinu í kringum Eyjafjallajökul berst um þessar mundir yfir höfuðborgarsvæðið en hvöss suðaustlæg er ríkjandi. Styrkur svifriks mun líklega fara yfir heilsuverndarmörk í dag þegar miðað er við meðaltal síðasta sólarhrings.

Um hádegisbilið var hálftímagildi svifriks í mælistöðinni á Grensásvegi 200 prósentum yfir heilsuverndarmörkum, eða 154 míkrógrömm á rúmmetra, og í farstöðinni við leikskólann Blásalir var gildið 134. Heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Í kvöld er gert ráð fyrir að vind lægi og getur það haft jákvæð áhrif á loftgæði. Á morgun er spáð úrkomu sem ætti að draga úr líkum á svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.

Heilbrigðiseftirlitinu þykir ástæða til að benda þeim á sem eru með viðkvæm öndunarfæri, svo sem lungnasjúkdóma eða astma, að vera innandyra og bendir á leiðbeiningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar um hvernig bregðast skuli við menguna af völdum öskufoks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×