Deilur um þrotabú banka streyma til dómstólanna 2. nóvember 2010 04:00 Skjalamagnið í Baugsmálinu þótti gríðarlegt, en búast má við að slíkt verði daglegt brauð í sölum Héraðsdóms Reykjavíkur í málum frá sérstökum saksóknara vegna bankahrunsins. Fréttablaðið/GVA
Holskefla ágreiningsmála vegna föllnu bankanna hellist nú yfir héraðsdómstóla. Fyrstu níu mánuði ársins voru höfðuð 561 ágreiningsmál vegna gjaldþrotaskipta. Þetta eru um 25 sinnum fleiri mál en í meðalári, þegar þau fylla gjarnan annan tuginn. Þetta kemur fram í samantekt dómstólaráðs yfir fjölda mála sem borist hafa héraðsdómstólunum. „Þau mál sem eru þegar komin eru bara toppurinn á ísjakanum,“ segir Símon Sigvaldason, formaður dómstólaráðs. Hann segir að dómstólar megi búast við að málin verði samtals um það bil 2.000 talsins, og flest þeirra muni líklega koma til dómstólanna á næsta ári. Málin snúast flest um skilgreiningu á kröfu fyrirtækja og einstaklinga í þrotabú bankanna. Kröfurnar eru flokkaðar í forgangskröfur og almennar kröfur, og ákveða slitastjórnir bankanna í hvorn flokkinn kröfur falla. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi í flestum tilvikum, þar sem búast má við að lítið sem ekkert fáist upp í almennar kröfur, en mun meira upp í forgangskröfur. „Þetta verður gríðarlegur fjöldi mála, en einhver af þessum málum eru auðvitað keimlík,“ segir Símon. Þannig gæti úrlausn á einu máli haft fordæmisgildi fyrir önnur sambærileg mál. Símon segir fjölda þessarar tegundar ágreiningsmála valda stjórnendum héraðsdómstólanna talsverðum áhyggjum. Hann segir að þær áhyggjur minnki ekki þegar haft sé í huga að á sama tíma sé einnig von á því að mál frá embætti sérstaks saksóknara fari að streyma til dómstólanna. Tvö mál frá embættinu hafa þegar borist dómstólunum. Símon segir að búast megi við því að öll mál sem frá sérstökum saksóknara komi verði stór og tímafrek fyrir dómstólana, jafnvel umfangsmeiri en nokkur mál sem áður hafi komið til kasta íslenskra dómstóla. Nær öll mál sem tengjast hruninu, hvort sem það eru mál frá sérstökum saksóknara eða ágreiningur vegna gjaldþrotamála, munu rata til Héraðsdóms Reykjavíkur. Símon segir þegar byrjað að fjölga dómurum við dómstólinn og búast megi við frekari fjölgun. Hann segir að skilningur sé á því hjá stjórnvöldum að því mikla fé sem ráðstafað hafi verið til sérstaks saksóknara sé illa varið ef þau dagi uppi hjá dómstólum sökum fjárskorts þar.- bj
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira