„Þetta eru auðvitað bara göngin okkar“ 12. nóvember 2010 04:00 Ögmundur Jónasson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, vígði leiðina á laugardag ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra. Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, er Ögmundi á hægri hönd.mynd/vegagerðin
Þjóðvegurinn á milli Húsavíkur og Þórshafnar hefur nú styst um 53 kílómetra, eftir að Hófaskarðsleið var opnuð við hátíðlega athöfn í stórhríð síðastliðinn laugardag. Vegurinn leysir nú af Öxarfjarðarheiði, sem hefur aðeins verið fær að sumri til. Gunnólfur Lárusson, sveitarstjóri Langanesbyggðar, segir áfangann gríðarstóran. „Þetta eru auðvitað bara göngin okkar. Tær snilld,“ segir hann. „Vegurinn kemur til með að breyta öllu fyrir íbúa hérna og fyrir aðra að koma til okkar.“ Gunnólfur segir opnunina vera lok áratuga baráttu. „Ég held að það séu liðin um fimmtíu ár síðan byrjað var að berjast fyrir þessu,“ segir hann. „Þetta styttir leiðina fyrir Reykvíkinga til að koma að heimsækja okkur á Langanesi um 53 kílómetra.“ Gunnólfur segir húsnæðisvanda vera nokkurn á Þórshöfn og nánast sé barist um íbúðir á svæðinu. Ekki hefur verið byggt í bænum í tvo áratugi. „Það hefur verið að koma fólk til vinnu hjá okkur frá til dæmis Kópaskeri og Raufarhöfn. En auðvitað viljum við að fólk búi hjá okkur,“ segir Gunnólfur. Hann segir að leigufélagið 5 Laugavegur sé nú að hefjast handa við að byggja sex leiguíbúðir á Þórshöfn til að anna eftirspurninni á svæðinu. „Þetta er búið að vera mjög fínt og vegurinn á bara eftir að bæta ástandið,“ segir Gunnólfur. Framkvæmdin tengir saman Kópasker, Raufarhöfn og Þórshöfn með heilsársvegi. Er þetta lengsti vegarkafli með bundnu slitlagi sem tekinn er í notkun í einu á Íslandi; 39 kílómetra Hófaskarðsleið og nýr fjórtán kílómetra Raufarhafnarvegur, sem er afleggjari af Hófaskarðsleið. Heildarkostnaður við framkvæmdirnar samkvæmt Vegagerðinni er rúmlega 2,5 milljarðar króna. Ögmundur tók fram við opnunina að hann hefði öðlast nýja sýn á samgöngumál eftir að hafa vígt fjögur stór verkefni í vegagerð að undanförnu. Vegabætur fyrir íbúa viðkomandi svæða væru mun mikilvægari en hann hafði gert sér grein fyrir og ótrúleg sú gleði og bjartsýni sem lesa mætti úr orðum og fasi sveitarstjórnarfólks og íbúa þeirra byggða sem næst þessum framkvæmdum lægju. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira