Innlent

Sækja sjómann með bólgur í munnholi

TF Líf. Myndin er úr safni.
TF Líf. Myndin er úr safni.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF Líf, er á leiðinni til Reykjavíkur með veikan sjómann

Landhelgisgæslan fékk beiðni frá norskum togara um klukkan sjö í kvöld um að þar væri veikur maður um borð. Talið er að maðurinn, sem er færeyskur, sé með bólgur í munnholi sem leiði upp í höfuðið. Maðurinn er talsvert kvalinn.

Togarinn er um 175 sjómílur norðvestur af Reykjavík. Flugið tekur um þrjár klukkustundir. Búist var við því að þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×