Ákærðir fyrir stórfelldan bókaþjófnað 25. maí 2010 15:29 Ari Gísli Bragason hefur verið ákærður fyrir meintan þjófnað.
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært Ara Gísla Bragason og Böðvar Yngva Jakobsson fyrir þjófnað á tugum bóka úr dánarbúi Böðvars Kvarans á seinni hluta ársins 2006 og fyrri hluta ársins 2007. Það var Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og sonur Böðvars, sem kærði málið til lögreglunnar sumarið 2007. Lögreglan birti lista yfir þær bækur sem var saknað sama ár en um var að ræða fjöldann allan af fágætum bókum. Þar á meðal útgáfu af Snorra-Eddu og Völuspá frá 17. öld og Konungasögur Snorra Sturlusonar frá árinu 1633. Verðmæti safnsins hleypur á milljónum króna. Málið vakti talsverða athygli í janúar 2008 en þá sagði Hjörleifur í viðtali við dagblaðið 24 stundir, að Ari, sem er sonur Braga Kristjónssonar fornbókasala, væri samsekur í málinu. Ari kom þá í viðtal á Stöð 2 þar sem hann hótaði að fara í meiðyrðamál vegna ásakanna Hjörleifs. Ari sagðist hafi keypt bækur úr safninu í góðri trú af einstaklingi sem hafi boðið þær til sölu. Bókunum hafi hins vegar verið skilað þegar upp komst að um þýfi væri að ræða. Hann sagði ásakanir Hjörleifs vera úr lausu lofti gripnar. Það var svo í morgun sem málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Böðvar vildi ekki tjá sig um málið en staðfesti að þeir hefðu verið ákærðir vegna þjófnaðar á bókunum. Ekki náðist í Ara vegna málsins. Þá fékkst ekki uppgefið hvaða afstöðu þeir tóku til sakarefnanna.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Sjá meira